Við þökkum öllum þeim leik- og grunnskólum, frístundamiðstöðvum, dans-, myndlista- og tónlistarskólum, íþróttafélögum, menningar- og listastofnunum, félagasamtökum, sjálfstætt starfandi listhópum og listamönnum og öðrum sem að skipulagningu og framkvæmd viðburða á Barnamenningarhátíð komu, hjartanlega fyrir þeirra framlag.
Tæplega 11 þúsund börn komu fram á hátíðinni fyrir hönd skóla sinna, frístundamiðstöðva eða listaskóla, tóku þátt í skólasmiðjum eða voru áhorfendur á skólasýningum. Gestir voru rúmlega 42 þúsund.
Sjáumst glöð að ári liðnu!
Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22. apríl 2012. Þema hátíðarinnar er Uppspretta og endurspeglast það með ólíkum hætti í tæplega 200 viðburðum sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu!
Dagskrá fyrir Barnamenningarhátíð er fáanleg fyrir Iphone og Android tæki í gegnum hugbúnað sem hlaða má niður ókeypis í gegnum viðkomandi netverslun. Smellið á "Dagskrá fyrir" og hlaðið niður viðbótina (Happening) sem birtist til vinstri á nýrri vefsíðu.
Það er hægt er að skoða alla viðburði Barnamenningarhátíðar með því að smella á "Skoða Dagskrá" en einnig er þar hægt að setja saman og prenta út eigin dagskrá á mjög einfaldan hátt.
Á Facebook síðu hátíðarinnar eru settar inn myndir frá viðburðum og greinar frá ungum blaðamönnum sem blogga um hátíðina. Smellið á "Facebook" til þess að fylgjst með!
Við tengjum börn við náttúruöflin; sól, jörð, eld og vatn. Búið verður til gróðurhús úr gömlum krukkum, sólúr smíðað úr trjám, grillað í skóginum, veitt í Elliðavatni og farið í skemmtilegan ratleik.
Leiksýning Möguleikhússins í Gerðubergi, tröllasmiðja og leikir fyrir káta krakka. Flumbra tröllskessa var ógurlega skotin í stórum og ljótum tröllkarli, hún elti hann um allar jarðir og hljóp svo hratt að jörðin titraði og skalf undir fótum hennar.
Ef þú ert með sýningu, tónlistaratriði, smiðju eða aðra viðburði á Barnamenningarhátíð getur þú sent boðskort til vini og vandamenn. Farðu efst á vefsíðuna og smelltu á "Boðskort" í veftrénu.